|
Tónlistarskólar landsins fögnuðu uppskeru vetrarstarfsins á lokahátíð Nótunnar 2013 í Hörpu í gær. Tónlist ómaði í Eldborgarsal Hörpu sem og í opnu rými Hörpu frá kl. 11-18 og sannkölluð hátíðarstemmning var ríkjandi allan daginn.
Tónlistarnemendum út um allt land er óskað til hamingju með daginn - þetta var þeirra dagur! Allir nemendur sem stigu á svið Eldborgar fengu viðurkenningarskjal fyrir þátttöku í lokahátíð Nótunnar 2013.
Hér á eftir má sjá hverjir hlutu viðurkennningar og verðlaunagripi Nótunnar 2012.
|
|
Nánar...
|
|
Efnisskrá lokatónleika Nótunnar er nú aðgengileg undir "lokatónleikar" á linknum "þátttakendur". Þrettán tónlistaratriði verða flutt á fyrri tónleikunum sem hefjast kl. 11:30 og ellefu atriði verða á efnisskrá seinni tónleikanna sem hefjast kl. 14:00.
Sérstök valnefnd hefur það hlutverk að velja níu framúrskarandi atriði af þessum tvennum tónleikum og hreppa þau verðlaunagrip Nótunnar 2013. Jafnframt mun valnefndin útnefna besta atriði hátíðarinnar og fær viðkomandi tónlistarskóli afhentan farandgrip Nótunnar.
Allir flytjendur fá afhent viðurkenningarskjal fyrir þátttöku í uppskeruhátíðinni.
Í valnefnd sitja:
Arna Kristín Einarsdóttir, tónleikastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Högni Egilsson, tónlistarmaður
Peter Máté, píanóleikari
Kynnir á lokatónleikunum er: Felix Bergsson. |
|
Yfirstjórn Nótunnar hefur með höndum undirbúning og framkvæmd lokatónleika Nótunnar 2013 og er undirbúningur í fullum gangi. Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og á Nótunni 2012. Þátttakendum gefst færi á að máta sig á sviðinu í Eldborgarsal Hörpu milli kl. 8:00-11:00 lokatónleikadaginn, þ.e. sunnudaginn 14. apríl. Síðan taka við tvennir tónleikar þar sem fram koma 24 valin tónlistaratriði af landinu öllu. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 11:30 og þeir síðari kl. 14:00.
Lokaathöfn fer síðan fram kl. 16:30 þar sem níu framúrskarandi atriði fá verðlaunagrip Nótunnar 2013 auk þess sem besta atriði hátíðarinnar fær afhentan farandgrip Nótunnar. Þá mun Tónlistarsafn Íslands veita einu atriði sérstaka viðurkenningu í tengslum við "Ísmúsþema" í viðurkenningarflokknum frumsamin/frumleg atriði þetta árið. Þessi níu atriði munu flytja sín verk við lokaathöfnina.
Nánari upplýsingar munu birtast hér á síðunni á næstu dögum. |
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 2 |